Hápunktar úr fyrri leikjum 8-liða úrslita Meistaradeildarinnar
Ayman Aref / NurPhoto via AFP

Fyrri leikir 8-liða úrslita Meistaradeildarinnar fóru fram í vikunni þar sem fimm Íslendingalið voru í eldlínunni.

Magdeburg stendur best að vígi fyrir seinni leikina eftir sjö marka útisigur gegn Pick Szeged í Ungverjalandi 28-35. Í hinum þremur einvígjunum er mikil spenna fyrir seinni leikina.

Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans gerðu jafntefli á heimavelli gegn Álaborg. Bjarki Már Elísson og félagar hans í Veszprém unnu eins marks sigur gegn Füchse Berlin á heimavelli og þá vann Viktor Gísli og liðsfélagar hans í Barcelona tveggja marka útisigur gegn Nantes.

Hér að neðan má sjá hápunktana úr leikjum gærkvöldsins.

Pick Szeged - Magdeburg 28-35

Sporting - Álaborg 31-31

Veszprém - Fuchse Berlín 35-34

Nantes - Barca 30-32

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top