Ætla gera mitt besta að nýta þetta tækifæri vel
Kristeinn Steinn Traustason

Selfyssingurinn, Tryggvi Þórisson er einn af þremur nýliðum í íslenska landsliðshópnum sem Snorri Steinn Guðjónsson valdi á dögunum fyrir komandi vináttulandsleiki gegn Egyptum í Kaíró um miðjan maí.

Línumaðurinn stóri og stæðilegi er á sínu fyrsta ári hjá norsku deildarmeisturunum í Elverum.

,,Veturinn hjá mér í Elverum hefur gengið mjög vel. Ég kom inn í liðið nýkominn úr meiðslum en það gekk vel að vinna mér inn stöðu í liðinu en hlutverk mitt innan liðsins hefur stækkað með hverjum leiknum sem líður á tímabilinu."

,,Við erum tveir sem skiptum álaginu á milli okkar. Hér er mjög góð blanda af ungum leikmönnum og reynsluboltum inn á milli, Borge Lund, þjálfari er auðvitað hátt skrifaður, kröfuharður en líka mjög skipulagður og mikill metnaður og fagmennska í öllu starfi félagsins. Þá er stuðningur samfélagsins mjög mikill, góð mæting á heimaleiki og mikill stuðningur. Metnaðurinn í félaginu er mjög mikill og gaman að benda á að hér er mjög mikil virðing borin fyrir Þóri Hergeirssyni sem kom hingað sem leikmaður og þjálfari, breytti æfingamenningu, setti markmið og gerði kröfur sem enn eru til staðar. Þannig var skýrt markmið okkar að vinna norsku deildina og vinna áfram sæti í Evrópukeppni og auðvitað er stefnan sett á Meistaradeildina."

Elverum urðu deildarmeistarar á dögunum en liðið endaði með 47 stig á toppi deildarinnar, fjórum stigum á undan Íslendingaliði Kolstad.

,,Það var gríðarlega skemmtilegt og framundan er undanúrslita einvígi um norska titilinn. Álagið í vetur hefur verið býsna mikið með þátttöku í Evrópubikarnum, oft tveir leikir í viku með tilheyrandi ferðalögum, en þar náðum við að komast í 16 liða úrslit. Við náðum þar besta árangri sögunnar og áttum skemmtilegar viðureignir við stórlið þar til við duttum út gegn Montpellier, en þó með skemmtilegum sigri á heimavelli," sagði Tryggvi en liðið mætir Drammen í undanúrslitum en einvígið hefst á morgun. Tryggvi var í 35 manna hópi íslenska landsliðsins fyrir EM.

,,Ég átti gott spjall við Snorra fyrir EM en það er hörð samkeppni um stöður innan liðsins svo ég var mjög spenntur að fá kallið núna fyrir verkefnið í Kairo. Auðvitað er það stefna og draumur íslenskra íþróttamanna að vera valinn í landslið og spila fyrir Ísland og ég er þar ekkert undanskilinn. Ég átti sæti í unglingalandsliðum og fékk þar smá innsýn í þátttöku í mótum við mismunandi góðar aðstæður, sem er mikil reynsla og bronsið á HM með 21 árs landsliðinu 2023 stendur auðvitað uppúr en A landsliðið er auðvitað toppurinn og eðlilega er samkeppnin hörð og kröfurnar miklar. Ég ber mikla virðingu fyrir íslenska liðinu og þjálfarateyminu og mun gera mitt besta að nýta þetta tækifæri vel. Við munum mæta sterku liði Egypta í tveimur æfingaleiknum á framandi slóðum svo ég veit að þetta verður mjög skemmtileg og krefjandi vika," sagði línumaðurinn að lokum í samtali við Handkastið.

Tryggvi sem er fæddur árið 2002 lék með Savehof áður en hann gekk í raðir Elverum síðasta sumar en hann lék í öllum yngri landsliðum Íslands á sínum yngri árum.

Íslenski hópurinn fyrir leikina gegn Egyptum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top