
Hjörtur Ingi Halldórsson gekk á dögunum í raðir uppeldisfélags síns Hauka á nýjan leik eftir nokkur ár hjá HK bæði í Grill66-deildinni og Olís-deildinni. Hjörtur Ingi hefur verið einn af lykilmönnum HK í þeirra uppbyggingu sem félagið hefur verið í undanfarin ár en liðið komst í úrslitakeppni Íslandsmótsins tvö ár í röð undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar eftir mörg mögur ár fyrir það. ,,Tilfinningin að vera kominn aftur heim í Hauka er virkilega góð og ég er ótrúlega spenntur að byrja með strákunum. Ég sé næsta tímabil fyrir mér nákvæmlega þannig að við verðum að keppast um alla þá titla sem eru í boði. Það er það sem Haukar standa fyrir," sagði Hjörtur Ingi í samtali við Handkastið. ,,Tími minn í HK er búinn að vera hreint út sagt alveg frábær. Það að fara í HK er ein af bestu ákvörðunum sem ég hef tekið. Allt fólkið og vinir mínir sem ég hef kynnst í Kórnum er eitthvað sem ég verð alltaf þakklátur fyrir. Tímabilið sem var að líða var svona upp og ofan og litaðist svolítið af meiðslum í liðinu. Við vildum meira og mér finnst við hafa átt skilið að fá oddaleik í 8 liða úrslitunum. Síðustu tvö tímabil undir stjórn Halldórs Jóhanns hafa verið mjög skemmtileg og okkur tókst að koma HK aftur í úrslitakeppnina eftir 13 ára þurrk sem var virkilega stórt, og svo aftur á þessu tímabili," sagði Hjörtur sem sagði það alveg hafa komið til greina að vera áfram hjá HK. Haukar höfðu samband við Hjört strax í janúar og þá hafi boltinn farið að rúlla. Var stefnan alltaf sett á að koma aftur heim í Hauka? ,,Planið var alltaf að fá reynslu og spiltíma hjá HK og svo leið mér bara hrikalega vel í HK þannig svona já og nei. En þegar Haukar heyrðu í mér þá fóru heimaslóðirnar að kalla aftur á mig. Ég verð í hlutverki einna af rétthentu útileikmönnum í róteringu og læt til mín taka í vörninni," sagði Hjörtur Ingi sem er spenntur fyrir komandi tímum hjá Haukum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.