Gunnar Valur gerir 4+1 ára samning um áframhaldandi starf sem yfirþjálfari yngri flokka Fjölnis

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við Gunnar Val Arason um að vera áfram yfirþjálfari deildarinnar til a.m.k næstu fjögurra ára.

Gunnar Valur hefur gegnt stöðu yfirþjálfara deildarinnar frá því sumarið 2021. Einnig þjálfaði hann kvennalið Fjölnis í 6 ár en lét nýverið af störfum þar. Auk þess var hann aðstoðarþjálfari karlaliðsins í vetur og mun halda því hlutverki áfram á næsta tímabili. Gunnar Valur hefur líka þjálfað hjá ÍR og Víkingi á sínum ferli. Á árum áður var hann ólseigur línumaður.

"Hann hefur reynst deildinni afar verðmætur starfskraftur og sinnt starfinu af mikilli fagmennsku og kostgæfni. Í starfi sínu hefur Gunnar lagt áherslu á markvissa uppbyggingu yngri flokka, faglegt þjálfunarumhverfi og skýra stefnu í þróun leikmanna. Með áframhaldandi samstarfi við Gunnar er handknattleiksdeild Fjölnis að styrkja enn frekar þann grunn sem byggður hefur verið upp á síðustu árum" segir í tilkynningu frá Fjölni.

Róbert Línberg Runólfsson, formaður barna- og unglingaráðs handknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar framlengingunni. "Sem formaður barna- og unglingaráðs vil ég óska deildinni til hamingju með að fá að hafa Gunnar áfram hjá okkur í deildinni. Ég tel það mikinn happafeng fyrir deildina að halda áfram samstarfi við hann" segir einnig í tilkynningu Fjölnis.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top