Matthías Ingi í Gróttu

Matthías Ingi Magnússon hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu.

Matthías er fæddur árið 2006 og er alinn upp í Fylki og lék með Fjölni/Fylki þar til hann skipti yfir í Val. Hann fór svo í ÍR fyrir síðasta tímabil þar sem hann staldraði stutt við síðastliðinn vetur. Seinni hluta tímabilsins lék hann svo með Val U í Grill 66-deildinni þar sem hann skoraði 60 mörk í 8 leikjum.

„Við erum virkilega ánægðir með komu Matta í Gróttu. Matti er snöggur og áræðinn leikmaður sem býr yfir hraða sem hentar leikstíl Gróttuliðsins vel. Það verður gaman að vinna með honum næstu árin“ sagði Andri Sigfússon þjálfari liðsins við undirritun samningsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top