Gerir ekki ráð fyrir Magnúsi Óla meira í úrslitaeinvíginu
Baldur Þorgilsson

Leikmaður Vals, Magnús Óli Magnússon, er að öllum líkindum úr leik það sem eftir lifir tímabils eftir að hafa hlotið heilahristing í úrslitaeinvígi Olís deildarinnar gegn FH í gærkvöldi.

Hann var fluttur á sjúkrahús eftir þungt höfuðhögg og dvaldi þar fram á nótt. Valur sigraði leikinn 32-30 og hefur þar með tekið 2-1 forystu í einvíginu, aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum.

Atvikið átti sér stað þegar Magnús Óli lenti í samstuði við varnarmann FH, Ingvar Dag Gunnarsson. Hann lá eftir óvígur á vellinum og var borinn af velli á sjúkrabörum áður en hann var fluttur á sjúkrahús til frekari skoðunar. Magnús Óli hafði skorað tvö mörk í leiknum áður en hann þurfti að yfirgefa völlinn á sjúkrabörum.

„Hann var fram á nótt á spítala en er kominn heim,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, í samtali við Vísi.

Rannsóknir leiddu í ljós að Magnús Óli hlaut heilahristing. Stutt er á milli leikja í úrslitaeinvíginu og gæti Valur tryggt sér titilinn með sigri á mánudag. Þó er óvíst að Magnús taki frekari þátt.

„Ég geri ekki ráð fyrir honum það sem eftir lifir tíma­bils,“ sagði Ágúst um stöðu leikmannsins.

Ef FH sigrar næsta leik í Kaplakrika mun einvígið ráðast í oddaleik sem fyrirhugaður er fimmtudaginn 7. maí.

Ágúst var spurður út í líðan hjá Magnúsi.

,,Hann var svo sem bara að vakna, pínu daufur. Hann þarf bara tíma til að ná sér, taka einn dag fyrir í einu. En ég myndi segja það ólík­legt að hann taki þátt í þessum enda­spretti. Maggi er byrjunar­liðs­maður, bara mjög slæmt að missa hann. Leik­maður sem er frábær í bæði vörn og sókn en það kemur maður í manns stað. Ungir leik­menn fá stærra hlut­verk. Við tökumst á við þetta og undir­búum okkur fyrir erfiðan leik. Hvort sem að Magnús sé með eða ekki yrði það alltaf erfiður leikur.“

SJÁÐU HÖFUÐHÖGGIÐ SEM MAGNÚS ÓLI FÉKK – ENDAÐI UPP Á SPÍTALA

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top