
Elsa Björg Guðmundsdóttir hefur gert tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Elsa kemur til Gróttu frá KA/Þór en hún hefur leikið undanfarin fjögur tímabil á Akureyri. Hún er tvítug og er uppalin hjá HK. Elsa leikur sem línumaður og er öflugur varnarmaður. "Það er gleðitíðindi að Elsa komi í Gróttu enda getur hún bæði leikið sem tvistur og þristur í varnarleik Gróttuliðsins. Hún er kraftmikil og duglegur leikmaður sem mun klárlega smellpassa í Gróttuliðið næstu árin“ sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttu þegar samningar voru í höfn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.