Elmar Erlingsson skoraði eitt mark úr fimm tilraunum í sigri Nordhorn-Lingen á Ludwigshafen í þýsku B-deildinni í gærkvöldi. Elmar og félagar höfðu betur í leiknum 31-26 en Nordhorn voru einu marki yfir í hálfleik 15-14. Jafnræði var með á liðunum lengst af í leiknum en Nordhorn reyndust sterkari aðilinn undir lok leiks og skoruðu fjögur af síðustu fimm mörkum leiksins. Um var að ræða leik í 30.umferð deildarinnar en Nordhorn eiga fjóra leiki eftir af deildinni en liðið er í 6.sæti með 38 stig. Elmar er að klára sitt annað tímabil hjá félaginu en hann gerði nýverið samning við félagið til sumarsins 2027 og ljóst að hann verður áfram í herbúðum félagsins á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.