Ég elska Vestmannaeyjar – Fólkið er svo indælt og hjálpsamt
Eyjólfur Garðarsson

Hin 27 ára norski markvörður Amalie Frøland átti frábært tímabil í vetur með ÍBV. Hún kom eins og stormsveipur inn í íslenska kvennaboltann og átti margar frábærar frammistöður.

Amalie kom til ÍBV síðasta sumar frá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad HK þar sem hún var í tvö ár en áður var hún m.a. með Sola HK og Hinna Håndball í Noregi.

Því miður varð hún svo fyrir slæmum meiðslum í oddaleik í undanúrslitum á móti Haukum í Vestmannaeyjum og ljóst að það er langt bataferli framundan.

Við settum okkur í samband við þennan frábæra norska markmann og spurðum hana út í meiðslin, endurhæfinguna, tímabilið hjá ÍBV og Vestmannaeyjar.

Meiðslin

Ég man að ég fann smell í hnénu og hugsaði þetta strax að þetta væri ekki eðlilegt. Ég hef aldrei átt í neinum erfiðleikum með hnén á mér svo þetta var alveg nýtt fyrir mér. Ég var að vona að þetta hafi bara verið hnéskelin sem fór inn og út en bólgan og stirðleikinn fékk mig strax að hugsa að það versta gæti hafa gerst. Eftir segulómskoðun kom í ljós að fremra krossbandið í hnénu var slitið.

Endurhæfingin

Ég held að endurhæfingin fari svolítið eftir því hversu hratt ég get farið í aðgerð. Því fyrr því betra. En ég þarf að bíða eftir því að bólgan hjaðni og aftur byggt upp styrk í löppinni. Læknar segja að 4-6 vikur þurfi að líða áður en ég get farið í aðgerð. Ég held að þetta sé bara þessir týpísku 9-12 mánuðir eins og allir sem hafi lent í sömu meiðslum og ég segja að sé.

Tímabilið

Tímabilið er búið að vera mjög gott og skemmtilegt og ég hef notið þess í botn. Ég held að við höfum bætt okkar leik í gegnum tímabilið smátt og smátt. En ég held líka að liðið eigi ennþá meira inni og við höfum ekki náð hámarksgetu sem er gott. Við misstigum okkur allsvakalega á móti Gróttu í bikarnum snemma á tímabilinu og ég held að það hafi verið nauðsynlegt "Wake up call" fyrir okkur sem lið. Frá því gerðum við mjög vel í deildinni fyrir utan nokkur töp sem gerðu okkur erfitt fyrir að ná í deildarmeistaratitilinn. Liðið er núna að fara inn í úrslitaeinvígið eftir að hafa lent í gríðarlega erfiðum og orkumiklum 5 leikjum við Hauka og það hefur gefið stelpunum gríðarlega mikla og góða reynslu sem ég veit að stelpurnar geta tekið með sér inn í úrslitaeinvígið við Val.

Vestmannaeyjar

Ég elska Vestmannaeyjar. Þetta er svo fallegur og einstakur bær. Ég er ákaflega glöð að ég hafi getað fengið tækifæri til að búa á svona lítilli eyju eins og þessari. Þú getur rétt ímyndað þér hvað ég var hissa þegar ég fletti upp bænum á Google Maps í fyrsta skipti. Pinninn lenti út í sjó út fyrir strendur Íslands. Ég þurfti að "zoom-a" nokkrum sinnum inn til að átta mig á hvar Vestmannaeyjar raunverulega var. Útsýnið til Eyjafjallajökuls er ótrúlegt. Svo er lífið í bænum svo þægilegt. Engin traffík, enginn er að flýta sér, allt er nálægt þér og fólkið er svo indælt og hjálpsamt.

Handkastið sendir bestu batakveðjur á Amalie Frøland.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top