Tara Sól Úranusdóttir hleypur í skarðið fyrir Amalie Froland vegna meiðsla hennar. Tara Sól er á skýrslu í fyrsta leiknum og verður klár í slaginn í fyrsta leik úrslitaeinvígisins um Íslandsmeistaratitilinn við Val sem hefst á eftir kl. 15:00 á Hlíðarenda. Tara Sól er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum árið 2003 og var upp alla yngri flokka ÍBV. Einnig var hún partur af bikarmeistaraliði ÍBV árið 2023. Sumarið 2023 gekk hún svo í raðir Víkings og spilaði með þeim hátt í 2 tímabil allt þangað til hún varð ólétt af sínu fyrsta barni. Þetta er því hennar fyrsti leikur í þónokkurn tíma og ljóst að hún er ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.