
Orri Freyr Þorkelsson varð portúgalskur meistari þriðja árið í röð eftir sigur gegn Porto í gærkvöldi. Orri Freyr gekk í raðir Sporting sumarið 2023 og hefur því orðið portúgalskur meistari öll sín ár hjá félaginu. Sporting tók á móti Porto í Íslendingaslag í portúgölsku deildinni í gærkvöldi. Liðin voru í fyrsta og öðru sæti riðilsins fyrir leikinn. Það fór svo að Sporting vann leikinn 36-29 og gulltryggðu sér þar með meistaratitilinn þriðja árið í röð. Staðan í hálfleik var 15-12 Sporting í vil. Orri Freyr Þorkelsson skoraði 5 mörk fyrir Sporting í leiknum en Francisco Costa var markahæstur með 11 mörk. Þorsteinn Leó Gunnarsson var á sínum stað í liði Porto og skoraði 3 mörk fyrir þá og var vikið tvívegis af velli. Benfica bar sigurorð af Águas Santas í síðari leik dagsins, 25-31. Benfica var yfir í hálfleik 14-16. Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahóp Benfica í dag en markahæstur í liði þeirra var Reinier Dranguet með 12 mörk og hjá Águas Santas var Pedro Peneda markahæstur með 6 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.