Verður Wille þjálfari Óðins Þórs?
FRANCOIS LO PRESTI / AFP

Samkvæmt Handballtransfer er Jonas Wille fráfarandi þjálfari norska landsliðsins sterklega orðaður við svissnesku meistarana í Kadatten Schaffhausen.

Með liðinu leikur landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson en hann gerði fyrr á þessu ári langtíma samning við félagið til ársins 2030.

Jonas Wille stýrir norska landsliðinu í forkeppni heimsmeistaramótsins síðar í maí en það verður hans síðasta verkefni sem þjálfari Noregs. Hann var á dögunum orðaður við danska liðið HØJ Elite en nú virðist sem svo að Jonas Wille sé líklegur til að taka við Kadetten.

Hrvoje Horvat þjálfari Kadetten sem hefur stýrt liðinu þrjú tímabil er sagður vera taka við RK Zagreb í sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top