Fjölgun liða í Olís-deild kvenna er nauðsynleg – 83% vilja breytingu
Sigurður Ástgeirsson

69. ársþing HSÍ fer fram í Virkinu, Safamýri næstkomandi föstudag. Þar verður kosið um ýmis mál en eitt af stærstu málunum sem kosið verður um er tillaga Gróttu og ÍBV um fjölgun liða í úrvalsdeild kvenna úr 8 liðum í 10 lið.

Undirritaður er þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar og ritstjóri Handkastsins.

Enginn vill halda óbreyttu fyrirkomulagi

Það er einfaldlega ekki lengur hægt að verja það að Olís-deild kvenna í handbolta verði áfram 8 liða deild.

Þróunin í kvennahandbolta á Íslandi, skýr vilji innan hreyfingarinnar og rök sem byggja á bæði leikmanna- og félagastöðu kalla á breytingar og sú breyting er augljós: Fjölgun í úrvalsdeild um tvö lið og leika í 10 liða deild.

Vilji þeirra sem standa í þessu daglega er skýr. Í nýlegri könnun sem ég sendi út meðal þjálfara í Olís-deild og Grill66-deild kvenna kom fram að enginn þeirra sem tók afstöðu og tók þátt í könnuninni vill halda óbreyttu fyrirkomulagi. Ég endurtek. Enginn.

Meirihlutinn vill 10 liða úrvalsdeild á meðan fáeinir vilja jafnvel ganga enn lengra og fara í eina 14 liða deild. Núverandi kerfi nýtur einfaldlega engins raunverulegs stuðnings á meðal þeirra þjálfara sem tóku þátt í könnuninni.

Sama mynd birtist hjá leikmönnum en send var út könnun á leikmenn allra liða í Olís-deild og Grill66-deild kvenna. 116 leikmenn tóku þátt í könnun þar sem 82,7% sögðust vilja breytingar á deildarfyrirkomulaginu. Af þeim vilja 69,3% fara í 10 liða deild. Þetta eru ekki jaðarskoðanir, þetta er afgerandi vilji þeirra sem spila leikinn. En það er ekki bara vilji sem kallar á breytingar heldur einnig skýrt ósamræmi sem erfitt er að réttlæta.

Afhverju eru tólf liða úrvalsdeild karlamegin en átta kvennamegin?

Hvernig stendur á því að karlamegin er 12 liða úrvalsdeild á meðan aðeins fjögur lið eru í næst efstu deild en kvennamegin er staðan öfug: 8 liða úrvalsdeild og sex lið í Grill66-deild?

Hvers vegna eru fleiri lið föst í næst efstu deild kvenna en færri félög fá tækifæri í efstu deild, á sama tíma og karlar njóta mun stærri úrvalsdeildar? Þetta er skipulagslegt ósamræmi sem stenst enga skoðun. Ég hef spurt mann og annan út í þessa staðreynd og ekki enn hef ég fengið góð og gild rök fyrir því að það sé hægt að réttlæta þetta misræmi.

Myndi þetta viðgangast ef við myndum snúa dæminu við?

Ef Olís-deild karla hefði verið skipuð Val, FH, Haukum, ÍBV, KA, Aftureldingu, Fram og HK á síðustu leiktíð. HK hefði fallið og Fram hefði farið í umspil um fall. Já, þið lásuð rétt, Íslands- og bikarmeistararnir frá síðustu leiktíð hefðu farið í umspil um fall miðað við átta liða úrvalsdeild í ár.

Lið eins og Þór, Selfoss, Stjarnan, ÍR, Fjölnir, Hörður, Grótta, Víkingur myndu síðan leika í Grill66-deildinni þar sem eitt sæti væri öruggt upp í efstu deild.

Ég ætla leyfa mér að svara þessum vangaveltum fyrir öllum sem þetta lesa og segja: Nei, þetta myndi aldrei viðgangast. En afhverju leyfum við þessu að viðgangast kvennamegin ár eftir ár eftir ár.

Ef markmiðið er að efla íþróttina, auka samkeppni og skapa fleiri tækifæri, ætti að vera augljóst að stækka efstu deild kvenna, ekki halda henni lokaðri og þröngri. Rökin fyrir fjölgun eru sterk og snerta kjarna íþróttarinnar.

Hvar annarsstaðar í heiminum geta 25% liða fallið?

Í dag eru einfaldlega of fáir leikmenn sem fá tækifæri til að spila á hæsta stigi og of oft safnast hæfileika ríkustu leikmennirnir í sterkustu liðin. Það skapar ójafnvægi í samkeppni og dregur úr þróun leikmanna.

Eins er með ólíkindum að á hverju tímabili geta 25% liða í efstu deild kvenna fallið um deild. Hvar í heiminum er það staðan annarsstaðar en á Íslandi? Ég get ímyndað mér að stóru liðin horfi á þessa tölfræði með stjörnur í augunum og hugsa sér gott til glóðarinnar. Og það er ekki af ástæðu lausu. Sjáið efstu lið deildarinnar síðustu ár. Skoðið hvaðan þessir leikmenn koma. Akkúrat - þið eruð að skilja hvað ég á við. Að undanskildu liði ÍBV og Vals í ár

Með 10 liða deild stækkar hópur leikmanna sem spilar á efsta stigi leiksins. Breiddin eykst og fleiri fá raunveruleg tækifæri til að þróast og taka næsta skref.

Ég tala nú ekki um að þetta fjölgar einnig þeim félögum sem tekur þátt í leiknum á efsta stigi leiksins. Gefur fleiri yngri iðkendum í þeim félögum tækifæri til að sjá sitt félag leika á stóra sviðinu, fá leikmenn eins og Hafdísi Renötudóttur, Söndru Erlingsdóttur, Hörpu Maríu Friðgeirsdóttur og Sonju Lind Sigsteinsdóttur í heimsókn á sinn heimavöll.

Þetta snýst líka um stefnu og framtíðarsýn félaganna. Það hlýtur að vera sameiginlegur vilji að fjölga meistaraflokksliðum frá þeim 16 sem nú taka þátt í Íslandsmótinu í meistaraflokki. Ef sú er raunin til lengri tíma er óhjákvæmilegt að efsta deildin stækki í takt við það líkt og gerst hefur verið karlamegin þar sem 12 lið leika í úrvalsdeild.

Fyrir fjórum árum síðan léku 19 lið í meistaraflokki kvenna - 8 lið í úrvalsdeild og 11 lið í næst efstu deild. Í ár léku 16 lið í meistaraflokki kvenna. Það hlýtur að vera vilji þeirra sem hugsa um hag kvenna handboltans að við viljum félögum liðum í meistaraflokki. En er það í alvörunni vilji þeirra að í efstu deild séu einungis átta lið en í næst efstu deild gætum við verið með 11 lið og jafnvel fleiri? Enn og aftur - súm dæminu við. Þætti okkur eðlilegt að í Olís-deild karla væri 8 lið en í Grill66-deild karla væru 11 lið eða jafnvel fleiri? Svarið er einfalt og ég þarf ekki einu sinni að segja það.

Núverandi fyrirkomulag skapar of mikinn ófyrirsjáanleika fyrir mörg félög kvennamegin og gerir þeim erfiðara fyrir að halda úti venslaliðum í Grill66-deildinni og byggja upp heildstætt starf til framtíðar. Fjölgun í 10 liða deild myndi skapa meiri stöðugleika fyrir fleiri félög. Gott dæmi um stöðugleikann og sveifluna en þá var ÍBV í mikilli og harðri fallbaráttu á síðustu leiktíð en í ár eru þær meðal bestu liða landsins. Það er eitthvað sem segir mér að eftir erfiðan vetur í fyrra hjá kvennaliði ÍBV hafi stjórnendur félagsins ekki verið að huga til framtíðar og hugsa til venslaliðs enda um nóg að hugsa í að bjarga liðinu frá falli.

Minni sveiflur í deildarskipan gefa liðum raunhæfari tíma til að byggja upp samkeppnishæf lið, þróa leikmenn og styrkja innviði sína. Sá stöðugleiki hefur keðjuverkandi áhrif, hann auðveldar félögum að gera langtímasamninga við styrktaraðila og samstarfsaðila, sem aftur styrkir rekstrargrundvöll þeirra.

Stöðugleiki hefur einnig áhrif utan vallar. Sjálfboðaliðar eru burðarás í starfi félaga og í mörgum tilvikum tengdir leikmönnum og liðunum sjálfum. Þegar starfsemin er stöðugri, aukast líkurnar á að halda þessum mikilvæga hópi innan félagsins. Þá eru minni líkur á brottfalli leikmanna þegar félög búa við stöðugleika og skýrri framtíðarsýn.

Félög sem hafa svigrúm til að halda úti bæði liði í Olís-deild og venslaliði í Grill66-deild geta skapað betri umgjörð fyrir leikmenn á mismunandi stigum. Það styrkir bæði einstaklinga og heildina.

En afhverju að fara ekki í eina úrvalsdeild?

Kannanir hafa sýnt að áhuginn er ekki mikill fyrir því eins og staðan er í dag. Með einni úrvalsdeild fjölgum við heldur ekki meistaraflokksliðum heldur fækkum við þeim ef eitthvað er. Með einni úrvalsdeild er minni hvati að halda sér uppi, við tökum út fallbaráttu, toppbaráttu í Grill66-deildinni og stórskemmtilegt umspil eins og hefur sýnt sig undanfarin ár.

Með því að halda áfram að spila í tveimur deildum gefum við fleiri stelpum tækifæri að spila skipulagðan handbolta á fleiri stigum. Grill66-deildin styður við uppbyggingu, bæði fyrir félög í uppbyggingafasa og fyrir venslalið. 

Það liggur einnig fyrir að vilji er til að halda tveggja deilda kerfi. Umræður á ársþingum HSÍ síðustu ár hafa sýnt það skýrt. Hugmyndir um eina stóra deild hafa verið ræddar og hafnað. Því er 10 liða úrvalsdeild raunhæf og skynsamleg millileið – hún sameinar aukna breidd og áframhaldandi stigskiptingu. Spurningin er því ekki lengur hvort breytinga sé þörf, heldur hvers vegna hún hefur ekki þegar verið gerð. Svarið ætti að vera: núna.

Hverjir ætla að fella þessa tillögu?

Fulltrúarfjöldi á ársþingi HSÍ er 82 talsins. Það verður áhugavert að líta yfir salinn þegar kosið verður um breytingu á deildarfyrirkomulagi og horfa á þá aðila sem ætla sér að kjósa gegn breytingu um fjölgun í úrvalsdeild kvenna. Það væri áhugavert að heyra rök þeirra aðila fyrir því að fjölga ekki í úrvalsdeild kvenna þegar það er greinilegt að það er mikill vilji leikmanna og þjálfara í Olís og Grill66-deildunum að gera breytingar.

Það verður einnig áhugavert að sjá hvort það verða ákveðin félög sem ætla standa í vegi fyrir því að vilji leikmanna og þjálfara verði að veruleika.

Fjölgun liða í Olís-deild kvenna er nauðsynleg og löngu orðin tímabær. Ég hvet þá fulltrúa félaganna sem mæta á ársþing HSÍ að hugsa um hag kvennahandboltans þegar kosið verður en ekki hag hvers félags fyrir sig út frá þeirri stöðu sem félagið sitt er í. Eins hvet ég þá fulltrúa sem kjósa með þessari breytingu að líta yfir salinn þegar kosið verður og sjá hvaða aðilar ætla koma í veg fyrir því að við náum nauðsynlegri breytingu í gegn.

Ég vil ítreka:

  • 82,5% leikmanna í Olís-deild og Grill66-deild kvenna vilja breytingar á deildarfyrirkomulaginu. Ætlar þú, að standa í vegi fyrir því að það raungerist á ársþingi HSÍ á föstudaginn?
  • 69,3% leikmanna í Olís-deild og Grill66-deild kvenna vilja breyta deildarfyrirkomulaginu í 10 liða úrvalsdeild.
  • Enginn þjálfari sem tók þátt í könnuninni vilda halda óbreyttu deildarfyrirkomulagi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top