Birgir Steinn kominn í sumarfrí – Skoraði sjö mörk
BWM

Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar hans í Såvehof eru komnir í sumarfrí eftir sitt þriðja tap gegn Malmö í undanúrslitum sænsku úrslitakeppninnar.

Malmö vann einvígið 3-0 en þeir höfðu betur í leiknum í dag með þremur mörkum 37-34 eftir að staðan hafi verið jöfn í hálfleik 16-16.

Birgir Steinn sem var þar með að klára sitt fyrsta tímabil með Såvehof var næst markahæstur sinna manna með sjö mörk Magnus Persson var markahæstur með átta mörk. Hjá Malmö voru þeir Isak Persson og landsliðsmaðurinn, Nikola Roganovic markahæstir með sex mörk hvor.

Jafnræði var með á liðunum nánast allan leikinn en staðan var jöfn 33-33 þegar skammt var til leiksloka. Malmö reyndust hinsvegar sterkari aðilinn og unnu að lokum þriggja marka sigur 37-34 á heimavelli.

Malmö mætir annað hvort Alingsås eða Kristianstad í úrslitaeinvíginu en Alingsås leiðir í hinu undanúrslitaeinvíginu 2-1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top