Tveir lærisveinar Arnórs í liði umferðarinnar
FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP

30.Umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í gær er einn leikur fóru fram. Magdeburg situr á toppi deildarinnar með sjö stiga forskot á lið Flensburg sem situr í öðru sæti.

Að vana gefur Daikin handball út lið umferðarinnar og lítur það svona út:

Tin Herberg(Erlangen)

Tin Herberg markvörður Erlangan átti fínan leik er lið hans tapaði gegn Leizig. Herberg varði 14 skot sem samsvaraði 32,6 % hlutfallsmarkvörslu.

Noah Beyer(Bergischer)

Noah Beyer lærisveinn Arnórs Þórs í Bergischer átti glæsilegan leik er lið hans sigraði Hannover með eins marks mun. Beyer skoraði 8 mörk í leiknum.

Sören Steinhaus(Bergischer)

Sören Steinhaus lærisveinn Arnórs Þórs í Bergischer átti glæsilegan leik er lið hans sigraði Hannover með eins marks mun. Steinhaus skoraði 10 mörk ásamt því að hafa gefið 5 stoðsendingar.

Dean Bombac(Leipzig)

Dean Bombac leikmaður Leipzig átti góðan leik er Leipzig vann góðan sigur á Erlangan. Bombac skoraði 7 mörk auk þess að hafa lagt upp 7 mörk.

Niklas Theiss(Wetzlar)D

Niklas Theiss leikmaður Wetzlar átti góðan leik er lið hans vann Kiel. Theiss skoraði 6 mörk ásamt því að hafa gefið 4 stoðsendingar.

Tristan Kirschner(Wetzlar)

Tristan Kirschner hægra hornamaður Wetzlar átti góðan leik er lið hans vann Kiel. Kirschner skoraði 8 mörk úr jafn mörgum tilraunum.

Lukas Laube(Kiel)

Lukas Laube línumaður Kiel átti góðan leik er lið hans tapaði gegn Wetzlar. Laube skoraði 5 mörk fyrir Kiel.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top