Salan á Viggó einn af þáttunum sem skýrir stöðu Leipzig
Tom Weller /AFP

Karsten Günther, framkvæmdastjóri DHfK Leipzig, segir það sárt að fylgjast með liðinu glíma við botnbaráttu í þýsku Bundesligunni. Hann viðurkennir jafnframt að ákvörðunin um að selja Viggó Kristjánsson til HC Erlangen í janúar í fyrra hafi ekki verið sú rétta.

Staða Leipzig er erfið, en liðið er í fallbaráttu. Þrátt fyrir að sitja á botni deildarinnar eru aðeins tvö stig upp í öruggt sæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Fall niður um deild myndi hafa veruleg áhrif á fjárhag félagsins.

„Breyting á fjárhagsáætluninni vegna falls milli deilda myndi fela í sér grimmilegan niðurskurð fyrir allt félagið eins og það leggur sig. Ég myndi gjarna vilja forða okkur frá því,“ sagði Günther í samtali við þýsku sjónvarpsstöðina Dyn, samkvæmt umfjöllun Handball World.

Að hans sögn er enginn einn þáttur sem skýrir stöðuna, heldur samspil margra atriða þar á meðal sala Viggós. „Það er ekki einhver einn ákveðinn atburður sem hefur úrslitaáhrif. Það er samansafn atburða og salan á Viggó til Erlangen er svo sannarlega einn þeirra,“ sagði Günther.

Günther segir að þegar litið er til baka hefði verið hægt að taka aðrar ákvarðanir, og nefnir sérstaklega söluna á Viggó í því samhengi. Leikmaðurinn hefur síðan staðið sig vel hjá Erlangen og mun ganga til liðs við SG Flensburg-Handewittsumarið 2027.

„Er ég lít til baka hefðum við svo sannarlega getað gert ákveðna hluti öðruvísi. Á þeim tíma tókum við þessar ákvarðanir og við vorum allir sannfærðir um að það væru rétt skref að taka.“

Með Leipzig leikur Blær Hinriksson en hann er á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu en hann gerði eins árs samning við félagið en óvissa ríkir hvað tekur við hjá honum að tímabilinu loknu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top