Leggur skóna á hilluna rétt fyrir 42 ára afmælið
Laurent Lairys / Panoramic / DPPI via AFP

Franski línumaðurinn, Cédric Sorhaindo hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna 41 árs að aldri. Þetta tilkynnti leikmaðurinn á dögunum.

Sorhaindo verður 42 ára í júní í næsta mánuði en hann hefur leikið með Besiktas í Tyrklandi síðustu tvö tímabil. 

Á ferlinum lék hann 220 landsleiki með franska landsliðinu. Hann vann til sjö gull verðlauna með franska landsliðinu á stórmótum. Ólympíugull í London 2012, fjögur gullverðlaun á HM og tvívegis varð hann Evrópumeistari.

Þá vann hann til silfurverðlauna einu sinni og tvívegis til bronsverðlauna.

Á ferlinum kom hann víða við, hann hóf ferilinn með La Gauloise de Trinité. Þá lék hann með Angers, Paris Saint Germain og Toulouse. Þá lék hann ellefu tímabil með Barcelona á árunum 2010-2021, Dinamo Bucuresti á árunum 2021-2023 og svo loks Besiktas síðustu tvö tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top