Fyrrum markvörður KA gengur í raðir nýliðanna í Noregi
Egill Bjarni Friðjónsson

Norski markvörðurinn, Nicolai Horntvedt Kristensen hefur gengið í raðir nýliðana í norsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð, Viking frá Bergen.

Hann gengur í raðir félagsins frá sænska félaginu, Eskilstuna Guif eftir eitt ár hjá félaginu.

Nicolai lék með KA í Olís-deildinni tvö tímabil áður en hann gekk í raðir Guif síðasta sumar. Nú er hann hinsvegar kominn aftur heim til Noregs en Viking vann sér sæti í norsku úrvalsdeildinni á dögunum eftir sigur gegn Halden í umspili um laust sæti í norsku úrvalsdeildinni.

Viking endaði í 2.sæti norsku 1.deildarinnar á tímabilinu og mætti því Halden í umspilinu þar sem Viking vann það einvígi 2-1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top