Gunnar Steinn Jónsson flutti búferlum til Svíþjóðar síðastliðið sumar ásamt fjölskyldu sinni. Þar hefur hann verið að vinna fyrir sænska kaffifyrirtækið Sjöstrand. Hann ætlaði sér ekki að vera í kringum handbolta síðastliðinn vetur en datt svo óvænt inn sem þriðji þjálfari í þjálfarateymi karlaliðs Hammarby sem lék í sænsku úrvalsdeildinni. Nú er hins vegar óvissa hvað tekur við hjá Gunnari og fjölskyldu hans en þau gætu mögulega verið aftur á heimleið. Við heyrðum í Gunnari og fengum fregnir af því hvað væri mögulega framundan hjá honum. "Ég hef verið í viðræðum við topp klúbb hér í Svíþjóð, eitthvað sem mér finnst mjög spennandi verkefni. Ég ætla að sjá hvort við náum lendingu þar. Ef það gengur ekki upp þá er líklegast að við fjölskyldan flytjum aftur heim á klakann núna í sumar og þá hef ég að sjálfsögðu áhuga á að koma að þjálfun með einhverjum hætti og halda áfram minni vegferð þar"

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.