
Einn leikur fór fram á Norðurlöndunum í kvöld en Kolstad tókst að jafna metin í undanúrslitunum í Norsku úrvalsdeildinni með sigri á Bergen á útivelli. Eftir óvæntan tap í fyrsta leik liðanna var mikilvægt fyrir Kolstad að sækja sigurinn gegn Bergen á útivelli í kvöld. Það tókst en lokatölur urðu 30-33 fyrir gestina. Íslendingarnir voru atkvæðamiklir að venju en Sigurjón Guðmundsson var í marki liðsins meirihluta leiksins og varði sex skot af þeim tuttugu og níu sem hann fékk á sig eða 21% markvarsla. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði ekki mark að þessu sinni en fékk þó eina brottvísun. Benedikt Gunnar Óskarsson var sem fyrr öflugur í sókninni en hann skoraði þrjú mörk úr fimm skotum en gaf átta stoðsendingar. Næsti leikur liðanna fer fram á heimavelli Kolstad næstkomandi laugardag. Úrslit kvöldsins: Bergen 30-33 Kolstad

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.