
Arnór Ísak Haddsson skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við Handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn liðinu út tímabilið 2027-2028. Arnór er 23 ára gamall leikstjórnandi og er uppalinn hjá KA. "Arnór Ísak steig snemma sín fyrstu skref í meistaraflokki KA. Hann hefur nú leikið 153 keppnisleiki fyrir KA í deild, bikar og Evrópu en Arnór er sérstaklega óhlífinn leikmaður sem leggur sig ávallt allan fram og hikar ekki við að keyra á minnstu opnanir í vörn andstæðingsins. Þá sýndi hann í vetur að hann er einnig klár í enn stærra hlutverk í öflugum varnarleik liðsins og klárt að Arnór á framtíðina fyrir sér og afar jákvætt að hann sé búinn að skrifa undir nýjan samning við KA" segir í tilkynningu frá KA "Auk þess að leika með liði KA hefur Arnór einnig verið í lykilhlutverki í þjálfun yngri flokka hjá félaginu þar sem hann er að skila frábæru starfi. Þá er hann einnig mikill félagsmaður og alltaf til í að leggja sitt af mörkum í vinnu í kringum félagið og ómetanlegt fyrir KA að njóta krafta þessa öfluga kappa" segir einnig í tilkynningunni frá KA.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.