Uppsafnað tap HSÍ síðustu 5 ár rúmar 155 milljónir króna
HSÍ)

Stjórn HSÍ hefur birt ársreikning fyrir árið 2025. Tap var á rekstri sambandsins upp á rúmar 22 milljónir króna. Stjórn segir að rekja megi slæma fjárhagsstöðu sambandsins til góðs árangurs afrekstarfsins en bæði karla- og kvennalandsliðið fóru á stórmót auk þess sem öll yngri landsliðs sambandsins tóku þátt á stórmótum.

Kostnaður landsliða jókst um rétt tæpar 38 milljónir króna milli ára. Sambandið hefur dregið saman seglin víðast hvar annars staðar og hefur til að mynda stöðugildum hjá sambandinu fækkað um tvö á síðustu tveimur árum og hefur launakostnaður sambandsins dregist saman um rúmar 9 milljónir króna á þessum tveimur árum.

Stjórn HSÍ hefur verulegar áhyggjur af stöðunni

Stjórn HSÍ hefur lagt höfuðáherslu á að endursemja við núverandi styrktaraðila á árinu auk þess sem nýir hafa lagt sambandinu lið og hafa tekjur af styrkjum aukist um rétt ræpar 4 milljónir króna. Stjórn hefur þar fyrir utan ráðist í umfangsmikið þjóðarátak sem vonast er eftir að skili sambandinu árlega um 25 milljónum króna. Þá segir að það sé mat stjórnar að ríkið þurfi að koma með aukna fjármuni að borði ef halda á uppi sambærilegu afreksstarfi og verið hefur.

Tekjur hafa aukist

Tekjur HSÍ jukust um rúmar 63 milljónir króna á árinu og hefur þar aukinn styrkur úr afrekssjóði ÍSÍ mest að segja en hann jókst um tæpar 42 milljónir króna milli ára. Á móti lækkaði styrkur frá Lottó um tæpar 5 milljónir króna. Auglýsingatekjur af landsliðum jukust um tæpa 21 milljón króna og Handboltapassinn (HSÍ TV) skilaði í fyrsta sinn hagnaði.

Ekki sjálfbært til frambúðar

Ljóst er stjórn HSÍ hefur bæði dregið saman í starfsemi sinni og laggt kapp við það að auka tekjur sambandsins en þrátt fyrir það er uppsafnað tap síðustu fimm ára um 155 milljónir króna. Það er öllum ljóst að slíkt er ekki sjálfbært mikið lengur og löngu orðið tímabært að ríki stígi inn í og styðji það góða afreksstarf sem HSÍ sinnir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top