
Lokahóf Selfoss var haldið í Hvíta húsinu síðastliðið laugardagskvöld. Leikmenn ársins voru þau Hannes Höskuldsson og Hulda Dís Þrastardóttir. Hjá U-liðinu varð Hákon Garri Gestsson fyrir valinu. U-lið Markakóngur - Hákon Garri Gestsson, 128 mörk Meistaraflokkur kvenna Markadrottning - Mia Kristin Syverud, 108 mörk Meistaraflokkur karla Markakóngur - Hannes Höskuldsson, 161 mark
Leikmaður ársins - Hákon Garri Gestsson
Sóknarmaður ársins - Mia Kristin Syverud
Varnarmaður ársins - Adela Eyrún Jóhannsdóttir
Efnilegasti leikmaðurinn - Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir
Baráttubikarinn - Hulda Hrönn Bragadóttir
Leikmaður ársins - Hulda Dís Þrastardóttir
Sóknarmaður ársins - Tryggvi Sigurberg Traustason
Varnarmaður ársins - Elvar Elí Hallgrímsson
Efnilegasti leikmaðurinn - Anton Breki Hjaltason
Baráttubikarinn - Alexander Hrafnkelsson
Leikmaður ársins - Hannes Höskuldsson
Félagi ársins var síðan valin Guðbjörg Gunnarsdóttir. Hún hlaut titilinn í ár og mun því varðveita Hildarbikarinn næstu tólf mánuði.
"Guðbjörg er hrikalega öflugur félagi og sjaldgæf sjón að mæta á leik í Set höllinni þar sem hún er ekki löngu mætt. Íþróttalíf á Íslandi er knúið áfram með kröftum sjálfboðaliða og það er ómetanlegt að hafa fólk eins og Guðbjörgu með sér í liði" segir í tilkynningu frá Selfossi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.