Lokahóf Handknattleiksdeildar Fram var haldið síðastliðinn fimmtudag. Leikmenn, stjórnarliðar, sjálfboðaliðar og styrktaraðilar komu saman og nutu veitinga frá Lúx Veitingum. Rent a Party hélt uppi skemmtun líka með krapvél og beerpong. Verðlaun voru veitt fyrir að skara fram úr á tímabilinu sem og að ná áfangaleikjum. Meistaraflokkur karla Besti leikmaður: Ívar Logi Styrmisson Meistaraflokkur kvenna Besti leikmaður: Harpa María Friðgeirsdóttir Þá hlaut Valgerður Arnalds viðurkenningu eftir að hafa spila yfir 100 leiki fyrir meistaraflokk U-lið karla Besti leikmaður: Arnþór Sævarsson U-lið kvenna Besti leikmaður: Sara Rún Gísladóttir Einnig voru þau Sunna Jónsdóttir og Rúnar Kárason kvödd og þakkað fyrir þjónustuna hjá félaginu.
Mikilvægasti leikmaður: Breki Hrafn Árnason
Efnilegasti leikmaður: Max Emil Stenlund
Mikilvægasti leikmaður: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín
Efnilegasti leikmaður: Dagmar Pálsdóttir
Haukur í horni: Alex Unnar Hallgrímsson
Haukur í horni: Arna Sif Jónsdóttir

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.