Danski handknattleiksmaðurinn Mathias Gidsel hefur skrifað nafn sitt í sögubækurnar eftir að hafa slegið markamet í Meistaradeild Evrópu en enginn leikmaður hefur skorað jafn mörg mörk áður og Mathias Gidsel hefur gert á þessari leiktíð. Mathias Gidsel og liðsfélagar hans í Füchse Berlin slógu út Veszprém í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær eftir vítakastkeppni. Gidsel gerði sér lítið fyrir og skoraði tíu mörk í leiknum. Gidsel hefur skorað alls 143 mörk á tímabilinu og þar með farið fram úr fyrra meti Mikkel Hansen, sem skoraði 141 mark tímabilið 2015/2016. Afrek Gidsels telst enn merkilegra í ljósi þess að hann á eftir að spila tvo leiki á úrslitahelgi keppninnar, Final4. Haldi hann uppteknum hætti gæti hann bætt metið enn frekar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.