Franski handboltamaðurinn Valentin Porte varð fyrir ljótu broti í leik Vardar og Montpellier í Evrópudeildinni í vikunni. Atvikið átti sér stað í fyrri hálfleik í stöðunni 12-7 fyrir Vardar þegar Porte fékk þungt högg í andlitið frá Uros Mitrovic leikmanni Vardar og lá eftir blóðugur á gólfinu. Porto nefbrotnaði við höggið og þurfti aðhlynningu á vellinum. Dómarar leiksins dæmdu upphaflega tveggja mínútna brottvísun, en eftir nánari skoðun var brotið metið þess eðlis að leikmaður Vardar fékk réttilega rautt spjald. Þjálfari Montpellier, Erick Mathé hefur sagt að þrátt fyrir að Porte hafi nefbrotnaði treystir hann engu að síður á hann verði með í úrslitaleik franska bikarsins og í úrslitahelgi Evrópudeildarinnar. Myndskeið af atvikinu hefur vakið mikil viðbrögð meðal handboltaáhugamanna, en margir telja brotið hafa verið langt yfir mörkum þess sem eðlilegt getur talist í leiknum. Montpellier tapaði leiknum með þremur mörkum en tryggði sér engu að síður sæti í undanúrslitum keppninnar á samanlagðri markatölu. One of the hardest tackles I’ve seen in a very long time. 😳 Pour ceux qui n'avait pas encore vu l'attentat de Mitrovic hier soir sur Valentin Porte 😱 pic.twitter.com/HaClivHnTr
Let’s hope Porte is okay.
🎥: ehftv#handball pic.twitter.com/Vl8x8muRJF

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.