
Færeyingurinn Sveinur Olafsson hefur kvatt Aftureldingu. Sveinur Olafsson gekk til liðs við Aftureldingu frá H71 í Færeyjum fyrir tveimur árum síðan. Sveinur spilaði 53 leiki fyrir Aftureldingu ásamt því að þjálfa yngri flokka félagsins. Sveinur átti nokkrar flottar innkomur en hann var óheppinn með meiðsli á meðan dvöl sinni stóð í Mosfellsbænum. Sveinur hyggst flytja til Danmerkur þar sem unnusta hans býr. Mun hann einbeita sér að námi en ætlar líka að finna sér lið til að spila með.
"Sveinur var ávallt til fyrirmyndar bæði innan og utanvallar en núna er hann á leiðinni til Danmerkur til að sameina nám og handboltaiðkun. Við viljum þakka Svein kærlega fyrir hans framlag til félagsins og óskum honum velfarnaðar í Danmörku" segir í tilkynningu frá Aftureldingu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.