
Umræða um fordóma í íslenskum íþróttum hefur farið hátt eftir að greint var frá niðrandi ummælum stuðningsmanns ÍBV í garð Hafdísar Renötudóttur, markvarðar Vals og landsliðsins í leik ÍBV og Vals í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í vikunni. Málið hefur vakið sterk viðbrögð víða, og meðal þeirra sem tjá sig er þingkonan Hanna Katrín Friðriksson, sem setur atvikið í víðara samhengi og varar við því sem hún kallar vaxandi fordóma í samfélaginu. Hanna Katrín er fyrrum handboltakempa og lék á sínum tíma 32 landsleiki fyrir Íslandshönd en í dag er Hanna Katrin atvinnuvegaráðherra og situr á þingi fyrir Viðreisn. Pistill Hönnu Katrinar sem hún birti á Facebook í gær má sjá hér að neðan: Innfluttir fordómar: Mikið hljóta stuðningsmenn ÍBV, þessa öfluga íþróttafélags, að skammast sín fyrir framgöngu þeirra sem gerðu aðsúg að markmanni Vals í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil í kvennahandbolta núna í vikunni. Ég veit að þetta er ekki það sem félagið vill standa fyrir og geri ráð fyrir að máli verði tekið föstum tökum í Vestmannaeyjum sem og á vettvangi Handknattleikssambands Íslands. En svona fordómar, niðrandi köll á andstæðinga í íþróttaleik, eiga sér ekki stað í tómarúmi. Samtökin 78 sem og aðrir sem starfa innan mannréttindasamtaka ýmis konar hafa bent á sýnilegt bakslag í réttindum hinsegin fólks hér á landi. Ég man þá tíð þegar flestir stjórnmálamenn voru þungir í taumi þegar kom að því að tryggja hinsegin fólki mannréttindi til jafns við aðra þegna. Það var almenningur sem þá tók boltann með hugrökku baráttufólki og þrýsti á um breytingar. Í kjölfarið og alla tíð síðan hefur Ísland verið með þeirra þjóða þar sem hinsegin fólk kemst næst því að njóta réttinda til jafns við aðra þjóðfélagsþegn. Nú vill Miðflokkurinn fara til baka til gömlu góðu dagana þar sem hinsegin fólk var ekki svona sýnilegt heldur var haldið í skugganum. Til að ná þessu fyrirheitna ríki sínu herjar Miðflokkurinn nú á almenning með innfluttum fordómum. Stefið í fordómarausinu er að aukin réttindi hinsegin fólks þýði minni réttindi annarra. Ég veit að okkar fallega frjálslynda samfélag lætur ekki blekkjast. En einhverjar sprungur verða til. Ég treysti ÍBV til að kítta fljótt og vel í þær sem mynduðust í íþróttahúsinu í Eyjum um daginn. Eitt að lokum: Ein uppáhaldsiðja Miðflokksmanna er að misnota íslenska fánann í fordómafullri orðræðu sinni um málefni hinsegin fólks. Þess vegna er rétt að draga fram að sem afrekskona í íþrótt sinni, landsliðskona sem hefur borið hróður Íslands víða, hefur Hafdís Renötudóttir gert margfalt meira til að heiðra íslenska fánann en allir Miðflokksmenn til samans. Og nei Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.