
Einn leikur fór fram í Svíþjóð í kvöld en það var oddaleikur um sæti í úrslitin í karladeildinni milli Kristianstad og Alingsås. Heimamenn í Kristianstad voru með meðbyr eftir að hafa jafnað einvígið í 2-2 eftir að hafa lent undir 2-0 og þeir voru staðráðnir í því að fullkomna endurkomuna og tryggja sér sæti í úrslitin. Þeir voru einu marki yfir í hálfleik, 16-15 en í síðari hálfleiknum stigu þeir á bensíngjöfina og unnu að lokum góðan fimm marka sigur, 32-27. Einar Bragi Aðalsteinsson átti flottan leik og samkvæmt einkunnagjöf sænsku deildarinnar var hann besti maður vallarins. Hann skoraði fjögur mörk úr sex skotum, gaf fjórar stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki. Deildarmeistarar Kristianstad eru því komnir í úrslitaeinvígið en þar mæta þeir liði Malmö. Úrslit kvöldsins: Kristianstad 32-27 Alingsås

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.