Jafntefli niðurstaðan í botnslagnum
(Photo by Anke Waelischmiller/SVEN SIMON / SVEN SIMON / dpa Picture-Alliance via AFP)

Tveir leikir áttu sér stað í kvöld er 31.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gekk í garð.

Fyrsti leikur dagsins fór fram er Minden tók á móti lærisveinum Arnórs Þórs í Bergischer í sannkölluðum fallbaráttu slag. Leikurinn var járn í járn frá fyrstu mínútu. Þar sem leikurinn endaði í jafntefli 28-28, en staðan í hálfleik var 16-16. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Ian Weber með 7 mörk og 4 stoðsendingar.

Seinni leikur dagsins fór fram Í Hannover er Hannover Burgdorf bauð Blæ Hinriks og félögum í Leipzig í heimsókn. Leikurinn var mjög jafn í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að skora. Leipzig byrjaði betur og komst mest þremur mörkum yfir, en Hannover náði alltaf að svara og staðan var 15–15 í hálfleik. Í seinni hálfleik tók Hannover síðan yfir leikinn, þeir voru sterkari varnarlega og nýttu hraðaupphlaupin vel, sérstaklega þegar leið á leikinn. Þeir náðu smám saman að sigla framúr g héldu Leipzig frá því að komast aftur inn í leikinn. Lokatölur 36–33 sigur heimamanna. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Matej Klima með 9 mörk og 2 stoðsendingar.

Úrslit dagsins:

Minden-Bergischer 28-28

Hannover-Leipzig 36-33

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top