Portúgalinn fer frá Kúwait til Rúmeníu
Bo Amrup / Ritzau Scanpix / AFP

Rúmenska stórliðið Dinamo Bucuresti hefur gengið frá samningi við portúgalska landsliðslínumanninn, Victor Iturriza til næstu tveggja ára. Félagið greindi frá félagaskiptunum á samfélagsmiðlum sínum á dögunum.

Iturriza kemur til félagsins eftir eins árs dvöl hjá Kuwait Sporting Club í Kuwait. Þar áður lék hann hjá FC Porto á árunum 2016 til 2025.

Þessi 30 ára línumaður er 194 sentímetrar á hæð og vegur 117 kíló.

Iturriza hefur einnig verið fastamaður í portúgalska landsliðinu sem hefur náð góðum árangri á stórmótum undanfarin ár. Hann var meðal annars í liðinu sem hafnaði í fjórða sæti á heimsmeistaramótinu 2025 og í fimmta sæti á Evrópumótinu 2026.

Hjá Dinamo București hittir Iturriza landsliðsþjálfarann sinn, Paulo Pereira sem er á sínu fyrsta ári hjá Bucuresti samhliða því að þjálfa portúgalska landsliðið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top