
Einn leikur fór fram í Noregi í dag en þá tóku Kolstad á móti Bergen í oddaleik liðanna í undanúrslitum norsku deildarinnar. Eftir óvænt tap í fyrsta leik liðanna á heimavelli Kolstad tókst Kolstad að jafna metin á útivelli og þeir gátu tryggt sig í úrslitin með sigri í dag. Þeim brást ekki bogalistin því þeir unnu góðan sex marka sigur, 38-32. Íslendingarnir í liði Kolstad voru í stóru hlutverki líkt og í undanförnum leikjum. Sigurjón Guðmundsson stóð í markinu meirihluta leiksins en hann varði níu af þeim þrjátíu og fjórum skotum sem hann fékk á sig eða 26%. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum og gaf þrjár stoðsendingar á meðan Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum. Það er því orðið ljóst að í úrslitum mætast Kolstad og Drammen og má fastlega búast við því að Kolstad klári titilinn en Drammen komu á óvart með að slá út Elverum og eru klárlega sýnd veiði en ekki gefin. Úrslit dagsins: Kolstad 38-32 Bergen

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.