Benfica höfðu betur gegn Þorsteini Leó
Kristinn Steinn Traustason)

Portúgalska deildin hélt áfram í gær en Sporting Lisabon eru búnir að tryggja sér sigurinn.

Benfica tóku á móti Porto og höfðu betur 32-29. Þorsteinn Leó Gunnarsson, leikmaður Porto, skoraði 3 mörk í leiknum en Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahóp Benfica eins og undanfarnar vikur. Með sigrinum komst Benfica fyrir ofan Porto í deildinni og sitja í 2.sæti deildinnar meðan Porto eru í 3.sæti.

Meistararnir í Sporting héldu uppteknum hætti og sigruðu Águas Santas 37-29 í gær. Orri Freyr Þorkelsson skoraði 2 mörk fyrir Sporting í sigrinum.

Það er ein umferð eftir af deildinni sem fer fram eftir landsleikjahlé þann 23.maí en þar hafa Porto tækifæri að taka 2.sætið í deildinni til baka þar sem Benfica mætir toppliði Sporting.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top