Eitt stærsta verkefnahrun í dönskum handbolta
Jens Ørgaard Jensen

Það varð að veruleika í gær það sem margir óttuðust þegar nýliðar HØJ Elite féllu úr dönsku úrvalsdeildinni eftir tap gegn KIF Kolding í oddaleik umspilsins en leikið var á heimavelli HØJ Elite.

KIF Kolding hafði betur 33-30 og þar með 2-1 í einvíginu en KIF Kolding léku í 1.deildinni og enduðu í 2.sæti deildarinnar. Liðið vann Aarhus í undanúrslitum umspilsins og unnu síðan HØJ Elite í úrslitum umspilsins. Þar með er ljóst að KIF Kolding leikur á nýjan leik í dönsku úrvalsdeildinni eftir fall á síðustu leiktíð.

Anders Eggert fyrrum landsliðsmaður Danmerkur er þjálfari KIF Kolding.

Fall HØJ hefur vakið athygli í dönskum og erlendum miðlum enda var liðið talið með eitt metnaðarfyllsta verkefni síðustu ára í dönskum handbolta. Félagið hafði stefnt hátt eftir að hafa tryggt sér sæti í deild þeirra bestu á síðasta tímabili, en niðurstaðan varð þvert á væntingar.

Tímabilið fór illa af stað hjá félaginu, þrátt fyrir sterkan leikmannahóp og þrátt fyrir styrkingar fyrir tímabilið náði liðið aldrei flugi. Þjálfaraskipti snemma árs bættu ekki úr skák og í kjölfarið festist liðið í botnbaráttu deildarinnar. HØJ endaði í næst síðasta sæti deildarkeppninnar með 18 stig, tólf stigum meira en botnlið Grindsted.

Í riðlakeppninni sem tók við eftir deildarkeppnina endaði liðið neðst og þurfti því að mæta KIF Kolding í umspili um fall.

Í erlendum umfjöllunum hefur fall HØJ verið kallað eitt stærsta „verkefnahrun“ í dönskum handbolta. Sérfræðingar benda á að félagið hafi safnað saman stórum nöfnum án þess að ná að móta samheldna liðsheild. Þar vó þungt að leikmenn eins og Michael Damgaard, sem kom frá Evrópumeisturum Magdeburg, og sænski landsliðsmaðurinn Hampus Wanne, sem gekk til liðs við félagið frá Barcelona, náðu ekki að snúa gengi liðsins við.

Þrátt fyrir slakt gengi innan vallar hélt félagið áfram að byggja upp fyrir framtíðina og samdi meðal annars við sænska landsliðsmanninn Axel Månsson fyrir næsta tímabil. Þá var Lasse Andersson leikmaður Fuchse Berlin og Jannick Green markvörður PSG búnir að semja við félagið fyrir næstu leiktíð. Færeyski línumaðurinn, Isak Vedelsbøl hafði einnig samið við félagið frá Savehof. Nú ríkir hins vegar óvissa um hvort slíkir samningar standist eftir fallið.

Óljóst er hver næstu skref verða hjá HØJ Elite. Erlendir miðlar velta því upp hvort félagið neyðist til að endurskipuleggja starfsemi sína frá grunni, sérstaklega í ljósi fjárfestinga og væntinga sem ekki gengu eftir. Ljóst er þó að fallið er mikið áfall fyrir félagið og dönsku úrvalsdeildina enda var mikil eftirvænting fyrir komandi tímabili hjá félaginu og endurkomu Lasse Andersson og Jannick Green í dönsku úrvalsdeildina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top