
Íslenska landsliðið leikur tvo vináttulandsleiki við Egypta í Egyptalandi í vikunni en leikirnir fara fram í höfuðborginni, Kaíró. Snorri Steinn Guðjónsson valdi 18 manna hóp fyrir verkefni en hann gerði alls sjö breytingar á hópnum frá síðasta landsliðsverkefni þegar íslenska landsliðið lék tvo vináttulandsleiki gegn Svíþjóð hér á landi í mars. Íslenski hópurinn gegn Egyptum. Þjálfarateymið og þeir leikmenn sem ferðuðust til Egyptalands frá Íslandi í gær og eru því komnir til Kaíró og má gera ráð fyrir að allur hópurinn komi saman síðar í dag. Leikirnir fara fram á miðvikudag og föstudag og fara fram klukkan 13:00 á íslenskum tíma eða 16:00 á staðartíma. Handkastið spurðist fyrir um það hjá HSÍ í morgun hvort leikirnir yrðu sýndir en hefur ekki enn fengið svör við því. Það verður því að koma í ljós þegar nær dregur leikjum hvort hægt verði að horfa á leikina gegn Egyptum í vikunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.