Al­freð fékk heiðursorðu Saxlands-Anhalt
Sina Schuldt / AFP

Alfreð Gíslason þjálfari þýska karlalandsliðsins, var heiðraður um helgina með heiðursorðu Saxlands-Anhalt í Þýskalandi. Viðurkenningin var veitt í hálfleik á leik SC Magdeburg og HSV Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni.

Magdeburg, sem er staðsett í Saxlandi-Anhalt, á Alfreð mikið að þakka. Hann var við stjórnvölinn hjá félaginu á árunum 1999 til 2006 og á þeim tíma leiddi hann liðið til sigurs bæði í þýsku deildinni og Evrópukeppni. Liðið vann Meistaradeildina árið 2002 og varð Þýskalandsmeistari árið 2001.

Við athöfnina fékk Alfreð afar hlýjar móttökur frá áhorfendum, sem sýndu honum mikla virðingu og þakklæti. Hann er enn í hávegum hafður í þessari öflugu handboltaborg.

Heiðursorðan er ein sú virtasta sem veitt er á svæðinu og er fjöldi handhafa hennar takmarkaður við 300 manns hverju sinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top