Samkvæmt heimildum Handkastsins er sænski handboltaþjálfarinn Magnus Andersson líklegastur til að taka við norska karlalandsliðinu í handbolta þegar núverandi landsliðsþjálfari Jonas Wille lætur af störfum eftir tímabilið. Wille stýrir norska landsliðinu í síðasta sinn í umspilsleikjum gegn Tyrklandi um sæti á HM 2027 í vikunni, en norska handknattleikssambandið ákvað fyrr á árinu að framlengja ekki samning hans. Andersson er nú þjálfari FC Porto þar sem íslenski landsliðsmaðurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson leikur. Svíinn tók fyrst við Porto-liðinu árið 2018 og stýrði félaginu til fjögurra portúgalskra meistaratitla áður en hann lét af störfum sumarið 2023. Hann sneri svo aftur til félagsins fyrir yfirstandandi tímabil og er samningsbundinn til ársins 2027. Áður en Andersson tók við Porto hafði hann meðal annars þjálfað þýska félagið Göppingen, danska stórliðið AG Kaupmannahöfn og austurríska landsliðið. Hann er jafnframt einn sigursælasti handboltamaður Svía frá uppgangsárum landsliðsins á tíunda áratugnum. Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti svo farið að Andersson yfirgefi Porto eftir tímabilið til að taka við norska landsliðinu, þrátt fyrir að vera með gildan samning við portúgalska félagið. Þrír aðrir þjálfarar hafa einnig verið nefndir til sögunnar sem líklegir arftakar Jonas Wille. Um er að ræða þá Børge Lund þjálfara Elverum, Kristian Kjelling þjálfari Drammen HK og Stefan Madsen þjálfara Paris Saint Germain.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.