
Tuttugu Evrópu þjóðir verða í eldlínunni í vikunni þegar tíu einvígi fara fram í umspili um laust sæti á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi, í janúar 2027. Fara fyrri leikir einvígjanna fram í kvöld og á morgun og seinni leikirnir um helgina. Einvígin eru misáhugaverð en Serbía - Svartfjalland er eitt af stærstu einvígjum umspilsins. Einnig verður áhugavert að fylgjast með einvígi Austurríkis og Póllands, Sviss og Ítalíu, Svartfjallands og Slóveníu og síðan má ekki gleyma einvígi Bosníu og Færeyja. Einvígi kvöldsins: Austurríki - Pólland Noregur - Tyrkland Grikkland - Holland Sviss - Ítalía Tékkland - Frakkland Einvígi morgundagsins: Svartfjallaland - Slóvenía Serbía - Ungverjaland Slóvakía - Norður-Makedónía Bosnía - Færeyjar Spánn - Ísrael

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.