
Í morgun var dregið í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en undanúrslitin og úrslitin verða spiluð á final four í Köln helgina 13. og 14. júní. Í fyrri viðureigninni munu Álaborg og Barcelona mætast og í þeirri síðari verður þýskur stórslagur milli SC Magdeburg og Fuchse Berlin. Það gæti því verið Íslendingaslagur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en Viktor Gísli Hallgrímsson spilar með Barca og þeir Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson spila allir með Magdeburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.