Er ekki tilbúinn að hætta
Egill Bjarni Friðjónsson)

Úkraínumaðurinn og vinstri hornamaðurinn öskufljóti Igor Kopishinsky er þessa dagana félagslaus eftir að Afturelding sagði upp samningi hans í byrjun apríl.

Hinn 35 ára gamli Igor var búinn að spila hér á Íslandi í mörg ár. Fyrst með Akureyri handboltafélagi, svo með Þór Akureyri, svo Haukum og loks Aftureldingu í nokkur ár.

Hann skoraði 107 mörk í 21 leik í vetur og var næstmarkahæsti leikmaður liðsins. Igor var á árum áður landsliðsmaður Úkraínu.

Handkastið heyrði aðeins í Igor og spurði hann út í framhaldið.

"Staðan er sú að ég hreinlega veit ekki hvort ég spili handbolta á næsta tímabili. Ég vill svo sannarlega spila áfram. Ég er ekki tilbúinn að hætta. Enn sem komið er hef ég engin tilboð fengið en ég skoða allt sem ég fæ með opnum hug. Vonandi get ég spilað einhvers staðar á næsta tímabili." sagði Igor Kopishinsky

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top