Færeyingar standa vel að vígi – Ungverjar töpuðu
Cornelius Poppe / NTB / AFP

Fjórum leikjum er lokið í dag í fyrri umferð umspilsleikjanna fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Spánn og Ísrael mætast í Buenos Aires í Argentínu klukkan 22:00.

Bjarni í Selvindi skoraði eitt mark en Allan Norðberg ekki neitt í tveggja marka sigri Færeyja gegn Bosníu á útivelli í kvöld, 22-24. Seinni leikur liðanna fer fram í Þórshöfn á laugardaginn og standa Færeyingar vel að vígi fyrir seinni leikinn.

Færeyingar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik 12-10 en Vilhelm Poulsen og Hákun West av Teigum fóru mikið í markaskorun Færeyinga í leiknum. Hákun skoraði ellefu mörk og Vilhelm skoraði fimm mörk.

Í Svartfjallalandi töpuðu heimamenn með minnsta mun 28-29 gegn Slóveníu þar sem Miodrag Corsovic fyrrum línumaður Vals skoraði sjö mörk fyrir heimamenn. Staðan var jöfn 25-25 en þá komu þrjú mörk frá Slóveníu í röð. Miodrag skoraði hinsvegar tvö síðustu mörk Svartfellinga og lokatölur 28-29.

Serbía vann tveggja marka sigur á Ungverjum 31-29 á heimavelli en það er spurning hvort sá sigur dugi. Serbar voru sjö mörkum yfir þegar þrettán mínútur voru eftir en í stöðunni 30-23 skoruðu Ungverjar fimm mörk í röð og breyttu stöðunni í 30-28. Mikilvæg endurkoma Ungverja fyrir leikinn á heimavelli.

Að lokum vann Norður-Makedónía sjö marka sigur á útivelli gegn Slóvakíu 24-31 en Makedónarnir höfðu mikla yfirburði í seinni hálfleik.

Úrslit dagsins:
Svartfjallaland – Slóvenía 28-29
Bosnía – Færeyjar 22-24
Serbía – Ungverjaland 31-29
Slóvakía – Norður-Makedónía 24-31

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top