Selfyssingurinn, Daníel Karl Gunnarsson hefur framlengt samningi sínum við Stjörnuna. Hann gerir tveggja ára samning við félagið en þetta tilkynnti Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum í gær. ,,Daníel er afar fljótur hornamaður, góður slúttari og getur leyst ýmsar stöður í vörninni," segir meðal annars í tilkynningunni frá Stjörnunni. Daníel Karl skoraði 41 mark í 19 leikjum fyrir Stjörnuna í Olís-deildinni en Daníel hefur leikið með Stjörnunni undanfarin þrjú tímabil. ,,Gaman verður að fylgjast með Daníel áfram í bláu treyjunni næstu tvö árin," sagði ennfremur í tilkynningunni frá Stjörnunni. Stjarnan endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar en tryggði sæti sitt eftir sigur gegn Fjölni og Herði í umspilinu um laust sæti í deild þeirra bestu. Dagur Sverrir Kristjánsson gekk í raðir Stjörnunnar á dögunum eftir þrjú ár í Svíþjóð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.