

Mikil stemning ríkti í Royal Arena í Kaupmannahöfn í gærkvöldi þegar danska handboltalandsliðið heiðraði einn af sínum dáðustu leikmönnum. Mads Mensah Larsen lék sinn síðasta landsleik og kvaddi með stæl eftir glæsilegan feril. Danir tóku á móti Þjóðverjum í æfingaleik í Royal Arena og unnu sannfærandi átta marka sigur 36-28. Mathias Gidsel var markahæstur í danska landsliðinu með 10 mörk og Emil Jakobsen kom næstur með átta mörk. Þjóðirnar mætast aftur á morgun, þá í Lanxess Arena í Köln. Mensah hefur verið lykilmaður danska landsliðsins undanfarin ár. Á ferlinum spilaði hann alls 225 landsleiki og skoraði 341 mark, auk þess að vinna til ellefu verðlauna á stórmótum, þar á meðal heimsmeistaratitla og Ólympíugull og nú síðast Evrópumótið í janúar. Eftir Evrópumótið í janúar ákvað Mensah að leggja landsliðsskóna á hilluna. Með því lýkur kafla hjá einum mikilvægasta leikmanni Dana á síðustu árum, leikmanni sem hefur verið hornsteinn í einu sigursælasta tímabili í sögu dansks handbolta. Mensah leikur í dag með danska félaginu Skjern en hann sneri þangað aftur árið 2025 eftir farsælan feril erlendis. Hann lék sex tímabil með Rhein Neckar Löwen og síðan fimm tímabil með Flensburg áður en hann sneri aftur heim til Danmerkur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.