
Samkvæmt Instagram-síðunni, Univers_hand sem vitnar í heimildir frá HandNews, er franski leikmaðurinn Benoît Kounkoud orðaður við endurkomu til Paris Saint-Germain Handball frá pólska stórliðinu Industria Kielce. Kounkoud er 29 ára hægri hornamaður sem hefur um árabil verið einn af sterkari hornamönnum Frakklands. Hann hóf atvinnumannaferil sinn hjá PSG og lék með félaginu frá 2014 til 2022 þar sem hann vann fjölda Frakklandsmeistaratitla og bikara með stórliði Parísar. Árið 2022 gekk hann til liðs við Kielce í Póllandi þar hefur hann verið lykilmaður bæði í pólsku deildinni og Meistaradeild Evrópu undanfarin fjögur tímabil. Kounkoud hefur einnig verið fastamaður í franska landsliðinu um árabil. Hann hefur leikið yfir 60 landsleiki fyrir Frakka og varð Evrópumeistari með liðinu árið 2024 auk þess að vinna brons á heimsmeistaramótinu 2025. Eftir vonbrigðin að undanförnu virðast stjórnarmenn PSG vinna hörðum höndum að því að styrkja liðið sitt fyrir komandi tíma en mörg áhugaverð nöfn hafa verið orðuð við PSG að undanförnu. Meðal annars hefur vinstri hornamaðurinn, Dylan Nahi samherji Kounkoud í bæði franska landsliðinu og Kielce verið orðaður við PSG.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.