Cupic stýrir Vardar áfram
MARIUS BECKER / dpa Picture-Alliance via AFP

Króatíski þjálfarinn Ivan Čupić hefur framlengt samningi sínum sem aðalþjálfari hjá RK Vardar 1961 í Norður-Makedóníu.

Þessi fyrrum handboltaleikmaður tók viði liði Vardar í fyrra. Hann er einn sigursælasti leikmaður í sögu félagsins, þar sem hann lék með liðinu á árunum 2016–2021 og vann meðal annars Meistaradeild Evrópu tvívegis .

Cupic hefur unnið að því að byggja upp nýtt og samkeppnishæft lið eftir breytingar innan félagsins. Hann tók við starfinu eftir að fyrri þjálfari var látinn fara og var ráðning hans hluti af endurskipulagningu hjá félaginu .

Čupić er aðeins fertugur að aldri en hefur þegar öðlast dýrmæta reynslu sem þjálfari, meðal annars hjá uppeldisfélagi sínu áður en hann færði sig til Vardar. RK Vardar 1961 bindur því vonir við að stöðugleiki í þjálfarateyminu skili sér í betri árangri á komandi tímabilum, bæði á heimafyrir og í Evrópukeppnum.

Framlengingin þykir einnig mikilvægt skref í því að halda áfram uppbyggingu félagsins sem eitt af sterkari liðum Norður-Makedóníu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top