
Jonas Wille þjálfari norska landsliðið kom liðinu á heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári eftir sjö marka sigur gegn Tyrkjum í dag 30-37 en Norðmenn stóðu vel að vígi fyrir leikinn í dag eftir 43-30 sigur í fyrri leik liðanna í vikunni. Um var að ræða síðasta leik Jonas Wille sem þjálfara norska landsliðsins en norska handknattleikssambandið tilkynnti eftir Evrópumótið að samningur hans við sambandið yrði ekki framlengdur. Noregur voru níu mörkum yfir í hálfleik 18-9 og var aldrei spurning hvort liðið myndi hafa sigur úr þessum leik. Ciljan Sagosen, yngri bróðir Sander Sagosen kom við sögu undir lok leiksins en um var að ræða hans fyrsta landsleik fyrir norska landsliðið. Ciljan er aðeins 18 ára en hefur vakið mikla athygli fyrir sína frammistöðu í norsku úrvalsdeildinni. Hann hefur verið orðaður við Álaborg síðustu daga þar sem einmitt eldri bróðir hans leikur. Í kvöld geta Spánverjar og Færeyingar tryggt sér sæti á heimsmeistaramótið en tveir leikir fara fram í kvöld. Sjö leikir fara síðan fram á morgun í síðari umferð umspilsins um laust sæti á heimsmeistaramótinu. Færeyjar fá Bosníu í heimsókn en Færeyingar unnu fyrri leikinn með tveimur mörkum 24-22. Spánn mætir svo Ísrael en Spánverjar unnu fyrri leikinn 32-27 en leikirnir fara fram í Argentínu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.