Lýst vel á hópinn og þjálfarateymið

Stjarnan tilkynnti á samfélagsmiðlum sínum nú á dögunum að örfhenta skyttan Dagur Sverrir Kristjánsson væri búinn að semja við félagið.

Dagur Sverrir er að koma frá Svíþjóð þar sem hann hefur leikið síðastliðin 3 ár. Áður en hann fór til Svíþjóðar lék hann með sínu uppeldisfélagi ÍR og átti gott tímabil í Olís deildinni á tímabilinu fyrir búferlaflutninga til Svíþjóðar.

Við fengum viðbrögð frá Degi Sverri við að flytja heim til Íslands á nýjan leik og ganga í raðir Stjörnunnar.

"Eftir þrjú ár í Svíþjóð var kominn tími til að flytja aftur heim. Ég er mjög ánægður að hafa skrifað undir hjá Stjörnunni. Mér líst vel á hópinn og þjálfarateymið. Ég er viss um að ég haldi áfram að bæta mig í umhverfinu sem Stjarnan hefur uppá að bjóða. Er orðinn mjög spenntur að flytja heim, kynnast strákunum í liðinu og leggja allt mitt af mörkum. Það verður gaman að spila aftur heima fyrir fjölskyldu, vini og stuðningsmenn félagsins." sagði Dagur Sverrir Kristjánsson.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top