Bandaríkin tryggðu sér farseðilinn á HM
Egill Bjarni Friðjónsson

Sigurður Jefferson Guarino og landar hans í bandaríska landsliðinu unnu forkeppni Norður-Ameríku og Karíbahafs fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

Forkeppnin sem fram fór í Bettendorf í Iowa var skipuð fjórum þjóðum en Kúba dró landslið sitt úr keppni. Auk Bandaríkjanna og Grænlands tóku þátt Mexíkó og Kanada. Banaríkin tryggðu sér sæti á heimsmeistaramótinu með sigri á Grænlandi í lokaleik sínum í riðlinum. Bandaríkin unnu fjórtán marka sigur gegn Grænlandi í gær 32-18 eftir að hafa leitt í hálfleik með þremur mörkum 13-10.

Bandaríska landsliðið hefur þar með tryggt sér farseðilinn á HM 2027. Dregið verður í riðla heimsmeistaramótsins 10. júní næstkomandi í München.

Það eru því töluverðar líkur á því að Sigurður Jefferson sem gekk nýverið í raðir Hauka frá HK leiki á heimsmeistaramótinu á næsta ári.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top