Holland, Austurríki og Ungverjaland missa af HM
Foto Olimpik / NurPhoto via AFP

Grikkland, Pólland, Frakkland, Slóvenía, Serbía, Ítalía og Norður-Makedónía unnu sér öll inn sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

Grikkland gerði sér lítið fyrir og vann fimm marka útisigur gegn Hollandi 33-38 en Grikkirnir unnu heimaleikinn með tveimur mörkum og fara því sannfærandi á heimsmeistaramótið. Dimitrios Panagiotou var markahæstur með sjö mörk og Evangelos Arampatzis skoraði sex mörk. Robin Nagtegaal var markahæstur Hollendinga með sex mörk. Um er að ræða mikið áfall fyrir Hollendinga sem hafa verið fastagestir á stórmótunum að undanförnu. Grikkir hafa hinsvegar einu sinni leikið á HM og það var á HM 2005.

Pólverjar og Austurríki gerðu jafntefli 30-30 í Póllandi en þar sem Pólverjar unnu fyrri leikinn á útivelli með einu marki, 25-26 fer liðið áfram. Austurríki var í góðri stöðu í hálfleik 13-17 yfir en jafnræði var með á liðunum í seinni hálfleik og var mikil spenna undir lok leiks. Pólverjar jöfnuðu metin nokkrum sekúndum fyrir leikslok og tryggðu sér þar með farseðilinn á HM.

Frakkar fóru örugglega áfram eftir sigur gegn Tékkum í dag 36-31 en Frakkar unnu fyrri leikinn með ellefu mörkum á útivelli 26-37. Frakkland vann því einvígið 73-57.

Slóvenar slóu út Svartfjallaland eftir tveggja marka sigur á heimavelli 31-29. Slóvenar unnu fyrri leik þjóðanna með einu marki 28-29. Slóvenar höfðu yfirhöndina í leiknum í dag og voru þremur mörkum yfir í hálfleik 17-14 en liðið náði sjö marka forystu í fyrri hálfleik í stöðunni 16-9.

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leik Ungverjaland og Serbíu en ljóst var fyrir leikinn að hart yrði barist. Serbar unnu fyrri leikinn með tveimur mörkum 31-29 eftir að hafa verið sex mörkum yfir þegar lítið var eftir. Jafnt var í hálfleik í dag 17-17 en Ungverjar voru yfirleitt skrefi á undan. Þegar tæplega fimm mínútur lifðu leiks var staðan 31-29 Ungverjum í vil. Mijajlo Marsenic leikmaður Füchse Berlin jafnaði hinsvegar muninn í eitt mark þegar þrjár mínútur voru eftir. Ekkert var skorað síðustu mínútur leiksins og tryggðu Serbar sér áfram á HM með minnsta mun og skyldu Ungverja eftir með sárt ennið. Vanja Ilic skoraði níu mörk fyrir Serba. Bence Imre var atkvæðamestur Ungverja með sex mörk.

Ítalir taka þátt á sínu öðru heimsmeistaramóti í röð eftir að hafa unnið Sviss með sjö mörkum á heimavelli í dag. Sviss vann fyrri leik liðanna með þremur mörkum 32-29. Ítalir voru hinsvegar töluvert sterkari aðilinn í leiknum í dag. Í stöðunni 9-8 kom 7-1 kafli hjá heimamönnum sem breyttu stöðunni í 16-9. Staðan í hálfleik var 20-12. Ítalir skoruðu fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks og breyttu stöðunni í 22-12. Eftir það var aldrei spurning hvert sigurinn færi og að lokum unnu Ítalir sjö marka sigur 38-31. Gianluca Dapiran var markahæstur í liði Ítalíu og skoraði 12 mörk. Leopold Noam skoraði sjö mörk fyrir Sviss og var markahæstur.

Að lokum vann Norður-Makedóníu fimmtán marka sigur á Slóvakíu á heimavelli 38-23 og fer örugglega á HM eftir sjö marka sigur í fyrri leiknum.

Úrslit dagsins:
Norður-Makedónía - Slóvakía 38 - 23
Ítalía - Sviss 38-31
Pólland - Austurríki 30-30
Holland - Grikkland 33-38
Frakkland - Tékkland 36-31
Slóvenía - Svartfjallaland 31-29
Ungverjaland - Serbía 31-30

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top