Skoraði í sínum fyrsta landsleik með eldri bróður sínum
Stian Lysberg Solum / NTB

Ciljan Sagosen yngri bróðir Sander Sagosen lék sinn fyrsta landsleik í síðustu viku þegar Noregur tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu eftir sigur á Tyrkjum í umspilinu um sæti á HM.

Ciljan sem er fæddur árið 2007 er á sínu fyrsta tímabili með Bergen í norsku úrvalsdeildinni og vakti mikla athygli fyrir sína frammistöðu. Það fór svo að Jonas Wille þjálfari norska landsliðsins valdi hann óvænt í hópinn fyrir verkefnið gegn Tyrkjum.

,,Þetta er ótrúlega skemmtilegt fyrst og fremst. Þetta var skemmtilegur leikur, við spiluðum af miklum krafti en slökuðum síðan aðeins á, en fyrst og fremst er ég ánægður,“ sagði Ciljan Sagosen í viðtali eftir leik.

Hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark stuttu eftir að hafa stigið inn á völlinn. Hann viðurkennir að hann hafi verið örlítið stressaður þegar hann kom inná.

,,Mér fannst ég verða að vera áræðinn þegar ég kæmi inná ef ég ætlaði að eiga möguleika og mér fannst ég gera það. Þetta er stór leikur fyrir mig."

Að lokum var hann spurður út í tilfinninguna að hafa spilað sinn fyrsta landsleik með eldri bróður sínum, Sander Sagosen.

„Auðvitað er þetta stórt. Þetta er gaman og ég vona að þetta sé ekki síðasti leikurinn.“

Sander Sagosen er tólf árum eldri en Ciljan en Sander leikur með danska félaginu, Álaborg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top